Hútar herða tökin við Rauðahaf og olíuverð heldur áfram að hækka

Hútar náðu völdum yfir hafnarborginni Mocha í Jemen í dag. Þeir segja öll skip geta siglt örugg um Rauðahaf, nema skip frá Sádi-Arabíu.Heimildarmenn Reuters úr jemenska stjórnarhernum segja Húta hafa aukið ítök sín við Bab el-Mandeb-sund. Um það liggur ein mikilvægasta siglingaleið heims, til suðurs úr Rauðahafi.Sádi-Arabar hafa stólað á siglingar um sundið eftir að Hormússund lokaðist nær alveg vegna stríðs Bandaríkjanna við Íran. Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabar. OLÍUVERÐ RÝKUR UPP Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um fimm prósent í dag eftir þessi tíðindi og verðið á Brent-norðursjávarolíu fór yfir hundrað og fimm dali á tunnu. Það rauf hundrað dala múrinn í gær í fyrsta sinn síðan í júlí.Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 201
Hútar herða tökin við Rauðahaf og olíuverð heldur áfram að hækka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd