Hafnarfjarðarbæ láðist að segja upp leigusamningi og því er nýbygging Tækniskólans við Hafnarfjarðarhöfn í uppnámi. Bærinn bauð aðra lóð á Völlunum sem skólinn afþakkaði.Áform um að reisa skólann við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt fyrir fimm árum, en Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins með um 3.000 nemendur og er nú með starfsemi á nokkrum stöðum.Á nýjum stað átti að koma starfseminni undir einu þaki á 30.000 fermetrum sem á að kosta 27 milljarða og til stóð að skólinn yrði fullbyggður 2029.Talsverð uppbygging stendur til í þessu hverfi bæjarins sem meðal annars tekur mið af því að þarna rísi skólinn, og deiliskipulag vegna skólans var samþykkt í vor. ÁSKORANIR, SEGIR BÆJARSTJÓRI Þórður Þórarinsson bæjarstjóri í Hafnarfirði þáði ekki boð um viðtal, en í skrif