EES-samningurinn er af mörgum talinn hafa reynst Íslandi vel. Hann hefur veitt íslenskum fyrirtækjum aðgang að evrópskum markaði, auðveldað viðskipti með vörur og þjónustu svo og skapað íslenskum borgurum tækifæri til náms, atvinnu og búsetu erlendis. Fríverslunarsamningar geta styrkt íslenskt atvinnulíf án þess að Ísland þurfi endilega að ganga inn í dýpra pólitískt samband, en þá kemur upp vandi við EES.