Tæplega 4000 miðar eru seldir á úrslitaleik Mjólkurbikars karla sem fram fer á morgun. Leikurinn hefst klukkan 19:00 annað kvöld og mætast lið Aftureldingar og Breiðabliks á Laugardalsvelli. Lengjudeildarmeistararnir í Aftureldingu eru á leið í sinn fyrsta bikarúrslitaleik en Breiðablik hefur þrisvar spilað til bikarúrslita. Á síðasta ári voru skráðir áhorfendur á bikarúrslitaleiknum 3979 en þá mættust Valur og Vestri. Síðast þegar Breiðablik spilaði til úrslita, árið 2018, mættu 3814 áhorfendur en þá var ansi kalt í veðri það kvöldið.