Enska úrvalsdeildin hefur afhjúpað jóladagskrá sína en sjö leikir verða spilaðir 26. desember, á öðrum degi jóla. Aston Villa mætir Leeds í hádegisleik, fjórir leikir verða klukkan 15, Liverpool heimsækir Hull 17:30 og svo klukkan 20 um kvöldið etja kappi Newcastle og Mancheste City. Á síðasta ári var aðeins einn leikur spilaður á öðrum degi jóla. Á nýársdegi verður aðeins einn leikur; Leeds og Everton leika á Elland Road.