Um 30 til 40 manna hópur safnaðist saman fyrir utan hótel í úthverfi Portsmouth á Englandi eftir að orðrómur fór á kreik um að þangað hefði komið rúta með flóttamönnum. Raunin var sú að þarna var á ferðinni landslið Pakistana í krikket skipað leikmönnum 19 ára og yngri.Lögreglan á staðnum staðfesti í samtali við BBC að lögreglan hefði verið kölluð að hótelinu eftir að hópurinn safnaðist þar saman, skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gærkvöld að staðartíma. Lögreglan útskýrði fyrir fólkinu sem þangað var komið að áhyggjur þess af komu flóttamanna til borgarinnar væru ekki á rökum reistar. Engin brot voru framin.Hópurinn kom sér á brott skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöld. „ÞETTA VARPAR SKUGGA Á BORGINA OKKAR“ „Einhver sá mynd af hópi sem leit út fyrir að vera útlendingar fara úr rútu og viðk