Það var afar ánægjulegt að hlusta á ræðu heilbrigðisráðherra í gær, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Ráðherra lýsti því að hennar þingmál snerust meðal annars um lýðheilsu barna og nikótín. Bætt lýðheilsa barna stuðlar að betri lífsgæðum og heilsu, þar á meðal færri krabbameinstilvikum.