Stjarnan og norska félagið Molde FK hafa náð samkomulagi um kaup norska félagsins á Fanneyju Lísu Jóhannesdóttur frá Stjörnunni. Fótbolti.net greindi frá því í vikunni að Fanney væri á leið í atvinnumennsku, fyrr í dag var svo sagt frá því að hún færi til Molde og talið að kaupverðið sé um sjö milljónir króna. Hún er 17 ára kantmaður og uppalin hjá Stjörnunni. Hún átti mjög gott tímabil í Bestu deildinni, var lykilmaður í Stjörnuliðinu, skoraði fimm mörk og lagði einnig upp fyrir samherja sína. Hjá Molde hittir hún fyrir Sóleyju Eddu Ingadóttur, sem er árinu eldri en Fanney Lísa og sömuleiðis uppalin hjá Stjörnunni, og Amöndu Andradóttur. Fanney Lísa gæti spilað sinn fyrsta leik með Molde gegn Hönefoss á sunnudag. Molde situr í 7. sæti norsku deildarinnar.