Mennta- og barnamálaráðherra kynnti niðurstöður nýjustu PISA-könnunarinnar á kynningarfundi þann 8. september. Niðurstöðurnar voru að sögn verri en nokkru sinni fyrr og benda til þess að einungis 56% nemenda hafi grunnhæfni í lesskilningi. Aðrir þættir sem mældir voru komu líka illa út. Á fundinum voru ýmsar aðgerðir boðaðar til að spyrna gegn þróuninni. Ein þeirra felur í sér að nota gervigreind til að þýða námsefni. Í Kastljósviðtali sama dag sagði ráðherrann:Síðan erum við að fara að taka í okkar þjónustu nýja tækni sem heitir gervigreind. Við getum í rauninni þýtt mörgum sinnum meira af góðum og frábærum námsgögnum erlendis frá. […]Fyrir 455 milljónir í námsgagnaútgáfu getum við sennilega gert jafn mikið eins og fyrir milljarð miðað við þá nýju tækni sem við erum að fara að taka upp hv