Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut

Á fósturgreiningadeild er veitt sérhæfð þjónusta fyrir barnshafandi konur.RÚV / ShutterstockFósturgreiningardeild Landspítala flytur aftur í kvennadeildarhúsið við Hringbraut í næstu viku.Deildin flutti starfsemi sína tímabundið í hús Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð í lok árs 2021 vegna umfangsmikilla viðgerða og endurbóta á húsnæði kvennadeildarinnar við Hringbraut.Í næstu viku sameinast því öll þjónusta kvennadeildarinnar á ný eftir fimm ára aðskilnað. Þá verður meðgönguvernd, fósturgreining og bráðaþjónusta kvenna- og barnaþjónustu aftur undir sama þaki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítala. Þar segir að þetta muni tryggja betra flæði, nánara samstarf fagfólks og enn heildstæðari þjónustu við skjólstæðinga.
Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd