Bræðurnir Magnús Már og Anton Ari Einarssynir munu mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins annað kvöld þar sem Afturelding og Breiðablik eigast við. Verður það annað árið í röð þar sem bræður munu mætast í úrslitum Mjólkurbikarsins en Jeppe og Patrick Pedersen mættust í úrslitaleik Vals og Vestra á síðasta ári. Jeppe skoraði eina mark leiksins með glæsilegu skoti fyrir utan teig en Patrick varð fyrir því óláni að slíta hásin í leiknum. Magnús Már, þjálfari Aftureldingar, ræddi um hvernig það væri að mæta bróður sínum á Laugardalsvelli í hlaðvarpinu Einn Tveir, sem er í umsjón Alberts Ingasonar og Ásgeirs Barkar Ásgeirssonar.