„Þau eru flest mjög ánægð með sína heimahaga en væru til í til dæmis lengri opnunartíma félagsmiðstöðva. Þau kalla mikið eftir því.“Þetta segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, sem er á Patreksfirði þessa stundina. Barnaheill og Geðhjálp hafa farið um landið undanfarið til að ræða geðrækt og mikilvægi þess að huga að geðheilsu.Í dag er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Gulur september, samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum, er enn fremur í þessum mánuði. TENGSL SKIPTA MÁLI Kolbrún Hrund segir að andleg líðan hafi ekki mælst alveg nógu vel hjá íslenskum unglingum. „Kvíði og streita eru of mikil – en við vitum líka að góð tengsl skipta mjög miklu máli. Þannig að við ákváðum að ferðast um og heyra í