Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, fékk sitt fjórða gula spjald í sumar í gær og á heimasíðu KSÍ er hann skráður í leikbanni. Það eru hins vegar ekki staðan því eins gildir með þjálfara og leikmenn að eftir 22. umferð, bæði í Bestu deild karla og Lengjudeildinni, fá allir þeir sem hafa fengið þrjú gul spjöld eða færri í deildinni eitt spjald í afslátt (skv. grein 13.1.1 í reglugerð KSÍ um aga- og úrskurðarmál) - þ.e.a.s. eitt spjald er dregið af spjaldafjöldanum og þurfa þeir leikmenn eða þjálfarar að fá alls fimm gul spjöld til að fá leikbann fyrir uppsöfnuð gul spjöld. Þetta staðfestir Axel Kári Vignisson sem er lögfræðingur KSÍ í samtali við Fótbolta.net og vísar í grein 13.6: „Ef þjálfari eða forystumaður liðs sem er á leikskýrslu er áminntur af dómara eða vísað frá leikvelli, sk