112 milljóna halli hjá Kópavogsbæ

Bæjarsjóður Kópavogs og fyrirtæki í eigu bæjarins voru rekin með minni halla en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun. Hallinn nam 112 milljónum króna á fyrri hluta árs en gengið hafði verið út frá 418 milljóna halla. Þetta kemur fram í tilkynningu Kópavogsbæjar til Kauphallarinnar.Bæjaryfirvöld rekja hallareksturinn til þess að verðbólga var meiri en spáð hafði verið. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 485 milljóna halla á bæjarsjóði en niðurstaðan varð 222 milljónir. Það er sá hluti sem fjármagnaður er með sköttum og gjöldum.
112 milljóna halli hjá Kópavogsbæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd