Jóhann Friðrik Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, sem sátu á þingi fyrir Framsóknarflokkinn á síðasta kjörtímabili, eru orðin starfsmenn þingflokksins. Þar hitta þau fyrir formanninn Lilju Alfreðsdóttur sem einnig starfar fyrir þingflokkinn. Lilja Rannveig var starfsmaður þingflokksins en hefur sætaskipti við Einar Gunnarsson sem áður starfaði fyrir þingflokkinn en er nú kominn á skrifstofuna. Jóhann Friðrik er varamaður í Suðurkjördæmi og hefur reglulega tekið sæti á þingi á þessu kjörtímabili. Lilja Alfreðsdóttir gerðist starfsmaður þingflokksins í vor eftir að hún var kjörinn formaður flokksins. Auk þeirra þriggja starfar Ólafur Reynir Guðmundsson fyrir þingflokkinn. KRUKKAÐ Í NEFNDUM Þá tilkynnti forseti Alþingis um hrókeringar í nefndum við upphaf þingfundar í morgun.