Það er gríðarleg spenna í Bestu deild kvenna þegar deildin skiptist núna í efri hluta og neðri hluta. FH er með jafnmörg stig og Breiðablik á toppi deildarinnar en einu marki munar á liðunum í markatölu. FH vann 2-1 sigur á Þór/KA í síðasta leik fyrir skiptingu þar sem tveir efnilegir leikmenn voru bestu menn vallarins, þær Hafrún Birna Helgadóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir. Ingibjörg, sem er fædd árið 2009, hefur verið sex sinnum í sterkasta liði umferðarinnar í sumar.