Læsi er ein af grundvallarforsendum þess að geta tekið virkan þátt í námi og samfélagi. Það snýst um miklu meira en að geta lesið orð á blaði. Læsi felur í sér að skilja, túlka, leggja mat á og nýta upplýsingar og hefur áhrif á nám, sjálfstæði, sjálfsmynd og möguleika einstaklinga til framtíðar.