Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt.