Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hefur lokið öllum verkefnum sem hann stefndi að því að klára á fyrstu hundrað dögum kjörtímabilsins. Borgarstjóri fagnar árangrinum en segir uppsagnir starfsfólks hafa verið erfitt verkefni. Frekari hagræðing sé framundan og henni fylgi óhjákvæmlega enn fleiri uppsagnir hjá Reykjavíkurborg.„Ég er bara ofsalega ánægð með árangurinn,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. „Ég finn að það er gott agatæki að vera með svona lista – bæði að hafa hann fyrir framan sig sjálfan en líka að bjóða almenningi og fjölmiðlum upp á að fylgjast með. Það veitir okkur aðhald.“31 verkefni er á verkefnalista borgarstjórnar fyrstu 100 dagana og hefur verið hakað við hvert og eitt þeirra á vefnum Verkefnalisti.is.„Þetta voru auðvitað allt mjög