Maður sem átti í viðskiptum við leigufélagið Sólarmegin, sem leigði út íbúðir á Spáni, segist hafa tapað um þremur milljónum króna. Hann greiddi ársleigu fyrirfram og segir að aldrei hafi verið staðið við loforð. GEKK MJÖG VEL Í FYRSTU Fréttastofa greindi frá því í gær að að minnsta kosti tíu Íslendingar hefðu lent í vandræðum eftir að hafa leigt íbúðir á Spáni af leigufélaginu Sólarmegin. Fólkið greiddi stórfé en fékk ekki húsnæðið vegna þess að móðurfélag Sólarmegin er komið í greiðslustöðvun.Halldór Svavarsson segist hafa haft góða reynslu af fyrirtækinu í upphafi. Hann leigði íbúð á Playa Flamenca á Alicante í stuttan tíma fyrir tveimur árum.„Ég hafði fyrst samband við þá 2024 og þá útveguðu þeir mér íbúð í stuttan tíma og allt gekk bara mjög vel.“Hann ákvað því að leigja aftur af f