Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar skiluðu 5,5 milljarða króna tapi á fyrstu sex mánuðum ársins. Í fjárhagsáætlun hafði hins vegar verið gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi og er niðurstaðan því um 12,2 milljörðum lakari en áætlað var. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir janúar til júní, sem afgreiddur var í borgarráði í dag. Í tilkynningu frá borginni er...