Umræðan um PISA fer fljótt í kunnuglegt far. Niðurstöður birtast, fyrirsagnir verða stórar, stjórnmálafólk leitar skýringa og önnur leita gjarnan að sökudólgum. Símarnir, samfélagsmiðlarnir, foreldrarnir, kennararnir, námsmatið eða jafnvel PISA sjálft. En stóra myndin er bæði einfaldari og flóknari.