„Stjórnunarhættir FIFA standast ekki þá staðla sem fótboltinn stendur fyrir," segir Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, í yfirlýsingu. Hann segir að endurskoða allt kerfi FIFA og vinna að umbótum, til þess þurfi að ræða við álfusambönd, aðildarlönd, leikmenn, stuðningsmenn og sérfræðinga í stjórnarháttum. „Það þarf að vinna að víðtækri umbreytingu á stjórnarháttum FIFA, með það að markmiði að endurvekja traust, auka gagnsæi og tryggja sjálfstæði og góða hegðun stjórnenda FIFA."