Það er óvenjuleg staða uppi fyrir úrslitaleikinn í Mjólkurbikar karla. Breiðablik, eitt af stærstu félögum landsins, mætir Aftureldingu sem hefur nýlokið við að vinna Lengjudeildina og tryggja sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili. Breiðablik er í djúpri lægð. Blikar hafa ekki unnið leik síðan í lok júlí og hafa tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum. Afturelding kemur hins vegar inn í úrslitaleikinn í allt annarri stöðu og hefur verið tölfræðilega langbesta lið Lengjudeildarinnar í sumar. Er deildarmunurinn nóg til að gera Breiðablik að mun sigurstranglegra liðinu? Við rýnum í tölurnar, gengi liðanna og það sem gætu ráðið úrslitum á Laugardalsvelli.