Heimild er í nýju fjárlagafrumvarpi til að selja flugstöðina á Húsavík. Hugmyndin er komin frá ISAVIA til ríkisins. Rúmt ár er síðan síðast var áætlunarflug um völlinn. Hann gegnir enn lykilhlutverki í sjúkraflugi.„Þetta er bæði byggða- og öryggismál myndi ég segja, að hafa völlinn og þar með aðgengi að flugstöðinni, að það sé í lagi. Við verðum alveg vör við það að aðilar sem eru að koma að kynna sér aðstæður hérna séu að fljúga um Aðaldalsflugvöll,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir, formaður byggðarráðs Norðurþings. FORMAÐUR FJÁRLAGANEFNDAR HISSA Ríkið á flugstöðina og ISAVIA sér um rekstur hennar. Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis og þingmaður Norðausturkjördæmis, hafði engin svör við því hvers vegna ætti að selja flugstöðina þegar fréttastofa leitaði eftir þeim.