Óttast að færanlegu kennslustofurnar geti orðið varanlegar

Byggingarleyfi sem byggingarfulltrúinn í Reykjavík gaf út til að reisa tvær færanlegar kennslustofur við leikskóla í Árbæ stendur þrátt fyrir að nágrannar hafi reynt að fá það fellt úr gildi.Íbúar sem búa nærri leikskólanum Árborg töldu að réttindi þeirra hefðu ekki verið virt og sögðu að færanlegu kennslustofurnar væru ekki færanlegri en svo að niðurrif þyrfti til að losna við þær og að húsin gætu nýst í áratugi.Byggingarfulltrúi gaf tvisvar út byggingarleyfi fyrir framkvæmdum við leikskólann. Fyrra leyfið var afturkallað og nágrönnum gefið færi á að gera athugasemdir við fyrirhugaða byggingu. Að því loknu var nýtt byggingarleyfi gefið út. KÆRÐU LEYFISVEITINGUNA Íbúar í einu húsi í nágrenninu kærðu útgáfu byggingarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Íbúarnir töld
Óttast að færanlegu kennslustofurnar geti orðið varanlegar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd