Blikar leggja rysjótt gengi að baki og Mosfellingar gætu skráð sig á spjöld sögunnar

Bikarúrslit karla í fótbolta eru á morgun þegar Afturelding og Breiðablik eigast við. Afturelding spilar í Lengjudeildinni en er á leið upp í efstu deild eftir gott gengi á tímabilinu. Þá er fyrsti stóri titill félagsins í seilingarfjarlægð. „Maður reynir að hugsa ekki um titilinn sjálfan heldur bara um vegferðina sem við erum á og leikinn stóra. Hvernig við ætlum að nálgast hann. En það er geggjað að við séum komnir í þennan séns og vonandi verða þeir fleiri á næstu árum,“ segir Aron Elí Sævarsson fyrirliði Aftureldingar. 17 ÁR FRÁ BIKARMEISTARATITLINUM Breiðablik hefur einu sinni áður orðið bikarmeistari. Það var árið 2009 og þrír leikmenn sigurliðsins spila með Blikum í dag. Það eru Kristinn Steindórsson, Kristinn Jónsson og Andri Rafn Yeoman. Liðin eru 17 ár síðan og Höskuldur segir
Blikar leggja rysjótt gengi að baki og Mosfellingar gætu skráð sig á spjöld sögunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd