Quarashi býður Skagamönnum á tónleika: „Við lofum alvöru showi!“

Rappsveitin Quarashi ætlar að bjóða Akurnesingum á tónleika á morgun í Bíóhöllinni á Akranesi. Hljómsveitin heldur upp á 30 ára afmæli í Laugardalshöll 19. september og hefur undanfarnar vikur verið við æfingar í Bíóhöllinni á Akranesi.Hún kom saman á Lopapeysunni á Írskum dögum á Akranesi í fyrra eftir 10 ára hlé.Í tilkynningu á Facebook-síðu Bíóhallarinnar segir að hljómsveitin vilji þakka fyrir sig með því að stíga á svið.„Við erum búnir að vera í æfingabúðum í nokkrar vikur í þessari mögnuðu Bíóhöll og okkur langar að endurgjalda þá miklu velvild sem okkur hefur verið sýnd hér á Akranesi. Þess vegna ætlum við að skella okkur á sviðið og taka nokkur vel valin lög fyrir Skagamenn og aðra gesti. Hlökkum til að sjá ykkur – og við lofum alvöru showi!“Ekkert aldurstakmark er á tónleikana, se
Quarashi býður Skagamönnum á tónleika: „Við lofum alvöru showi!“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd