Jón Egilsson hæstaréttarlögmaður aðstoðar nú hjón sem greiddu eina milljón fyrir gistingu á vegum Sólarmegin á Spáni. Hann segir fólkið á leið til Spánar í næstu viku og þau þurfi að finna sér aðra gistingu. Hann ráðleggur fólki að kæra svikin saman, á Íslandi og á Spáni. Lögreglu á Íslandi hafa ekki borist kærur vegna málsins.