Bandaríkin fljúga í undanúrslit eftir stórsigur á Ungverjum

8-liða úrslit heimsmeistaramóts kvenna í körfubolta eru hafin. Ríkjandi meistarar Bandaríkjanna og Ungverjaland riðu á vaðið þar sem bandaríska liðið sýndi yfirburði sína. Liðið vann 52 stiga sigur, 108-56.Bandaríska liðið hafði völdin á leiknum allt frá byrjun og jók forskotið jafnt og þétt. 32 stigum munaði í hálfleik, 62-30, Bandaríkjunum í vil.Liðið var með 52% skotnýtingu úr þriggja stiga skotum í leiknum og það skilaði sér í stórsigri, 108-52. Bandaríkin mæta sigurvegaranum úr leik Austurríkis og Spánar á laugardag. 8-LIÐA ÚRSLITIN ÖLL Í DAG Það verður nóg um að vera í dag því allir leikir 8-liða úrslitanna eru í dag og sýndir á rásum RÚV.12:30 Kína - Frakkland (RÚV)15:45 Belgía - Þýskaland (RÚV)18:45 Ástralía - Spánn (RÚV 2)
Bandaríkin fljúga í undanúrslit eftir stórsigur á Ungverjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd