SEGJA ÁSTANDIÐ VERSNA HRATT Tólf vestrænar þjóðir, þar á meðal Íslendingar og aðrar norrænar þjóðir, tilkynntu í fyrradag um refsiaðgerðir sem beinast gegn landránsfólki og byggðum þess á Vesturbakka Jórdan-ár. Boðað er viðskiptabann á landtökubyggðir Ísraelsmanna í Palestínu og innflutningsbann á vörum sem eru framleiddar þar, það eru aðallega appelsínur, avókadó, döðlur, mangó, ólífuolíur, vín og vínber.Auk Norðurlandanna standa Bretland, Frakkland, Írland, Kanada, Portúgal, Pólland og Spánn að yfirlýsingunni. Löndin tólf segja í yfirlýsingunni að ástandið hafi versnað hratt vegna fordæmalauss ofbeldis af hálfu landtökumanna og stækkunar landtökubyggða. Þarna vekur athygli að Þjóðverjar eru ekki með en stefna þeirra gagnvart Ísrael hefur ætíð verið afar varkár vegna sögulegra ástæðna. Þ