Guðmundur Ingi var einn stofnenda Flokks fólksins, þingflokksformaður um árabil og varaformaður þegar hann sagði sig úr flokknum um miðjan apríl. Hann var mennta- og barnamálaráðherra frá mars 2025 fram í janúar í ár þegar hann sagði af sér embætti vegna heilsufars.Hann situr nú á þingi utan flokka og styður ríkisstjórnina.Guðmundur Ingi fór í veikindaleyfi fyrir síðustu jól og þá ákvað Inga Sæland formaður Flokks fólksins að gera breytingar á ráðherraliði flokksins; hún tók við embætti Guðmundar Inga og Ragnar Þór Ingólfsson kom nýr inn í ríkisstjórn og tók við félags- og húsnæðismálaráðuneytinu sem Inga hafði gegnt.Í yfirlýsingu sem Guðmundur Ingi sendi frá sér við úrsögn sína úr Flokki fólksins í mars bar hann meðal annars við trúnaðarbresti.Hann var í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í