Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á Laugardalsvelli annað kvöld. Þó Afturelding sé deild neðar eru margir sem hafa tröllatrú á að liðið hampi bikarnum. Í skoðanakönnun sem var á forsíðu spá 65% því að Afturelding hampi bikarnum en 35% því að Breiðablik vinni. Breiðablik er án sigurs í sex leikjum í Bestu deildinni, vann síðast í júlí, og hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir spilamennsku sína. Afturelding vann Lengjudeildina en eru Mosfellingar virkilega sigurstranglegri fyrir þennan leik?