„Það er mikil spenna, búin að vera mjög skemmtileg vika hingað til og hún verður betri með deginum,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, á fjölmiðlafundi KSÍ í gærdag fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Þrótti. Grindavík/Njarðvík hefur unnið báða viðureignir liðanna gegn Þrótti í Bestu deildinni en Gylfi les lítið í það. „Það gefur okkur fullt en gefur þeim líka fullt. Ég held að allt svona fari út um gluggann í leikjum af svona stærðargráðu. Við vitum ef við eigum góðan leik þá getum við unnið þetta lið,“ segir Gylfi.