Høiby fær að áfrýja nauðgunardómum

Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit, drottningar Noregs og stjúpsonur Hákonar Noregskonungs fær að áfrýja máli sínu. Hann var sakfelldur fyrir tvær nauðganir og 32 önnur brot í héraðsdómi í Osló í júní, þar á meðal brot í nánu sambandi, ofbeldisbrot og fyrir að rjúfa nálgunarbann í nokkur skipti.Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi en sætir stofufangelsi á heimili sínu. Hann fékk leyfi til að fara þaðan í gær til að vera við útför Haraldar V Noregskonungs.Petar Sekulic, lögfræðingur Høiby, sagði við norska ríkisútvarpið NRK að viðbúið hafi verið að áfrýjunin í heild sinni yrði samþykkt. Ný réttarhöld ættu að taka fjórar vikur en dagsetning hefur ekki verið ákveðin.Høiby neitaði ávallt sök í alvarlegustu ákæruliðunum og sótti um áfrýjun á dómum sem kveðnir voru upp yfir honum fyrir nauð
Høiby fær að áfrýja nauðgunardómum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd