Fimm umferðir eru eftir í Bestu deild karla og er búið að skipta deildinni upp í efri og neðri hluta. Á toppnum er Víkingur með átta stiga forskot á Fram í öðru sætinu þegar fimmtán stig eru í pottinum. Þrátt fyrir það segir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, að mikið sé undir í síðustu leikjum. Fram er stigi á undan KR og fimmtán stigum á undan Breiðabliki í 4. sætinu. Þið verðið í öðru eða þriðja sætinu ef þið náið ekki Víkingi, hvað vilt þú fá út úr þessum leikjum?