Baðlónum hefur fjölgað töluvert á Íslandi á undanförnum áratug eða svo. Þau nýjustu – Reykjaböðin við Hveragerði – opnuðu um helgina. Þar með eru baðlónin orðin tólf og þar af hafa fimm opnað á síðustu fimm árum.Sögufrægasta baðlón landsins er Bláa lónið og Bláa Lónið hf. er langstærsta félagið í þessum bransa. Þar er ýmislegt á döfinni og í nóvember verða töluverð tímamót í rekstri félagsins, en þá er stefnt að því að skrá félagið á hlutabréfamarkað. 20 MILLJARÐA FJÁRFESTING Í ÞJÓRSÁRDAL Langt er síðan rekstur Bláa Lónsins hf. snerist eingöngu um Bláa lónið sjálft. Starfsemin er mun fjölbreyttari, dótturfélögin eru níu og félagið hefur stækkað á alla kanta. Það á stóran hlut í fjórum öðrum baðlónum – við Mývatn, Húsavík, Egilsstaði og Laugarvatn – og fyrir þremur árum opnaði félagið hó