Fanney Lísa Jóhannesdóttir er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til norska félagsins Molde frá uppeldisfélaginu Stjörnunni. Ekki er búið að tilkynna félagaskiptin en Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, staðfesti við Fótbolta.net á mánudagskvöld að Fanney væri á leið í atvinnumennsku. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er kaupverðið um sjö milljónir króna sem gerir hana að einum dýrasta leikmanni sem seldur hefur verið úr Bestu deildinni, en talið er að þær Fanney Inga Birkisdóttir (frá Val til Häcken) og Thelma Karen Pálmadóttir (frá FH til Häcken) séu þær dýrustu. Fanney Lísa er kantmaður sem fædd er 2009, hún var mjög eftirsótt og voru Hammarby og Roma á meðal félaga sem vildu líka fá hana.