Antony klobbaði Hákon og fær urmul læka

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille mættu spænska félaginu Real Betis í Meistaradeildinni á þriðjudag. Leikar enduðu með 2-3 sigri spænska liðsins og lék Hákon Arnar Haraldsson, varafyrirliði landsliðsins, allan leikinn. Opinber aðgangur Meistaradeildarinnar á Instagram hefur birt stutt myndskeið úr leiknum þar sem hinn geðugi Antony, leikmaður Betis, fer illa með Hákon og klobbar hann. Myndskeiðið hefur vakið töluverða athygli og fengið hátt í 300 þúsund læk. Hægt er að sjá klippuna hér að neðan.
Antony klobbaði Hákon og fær urmul læka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd