Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknar og formaður borgarráðs, segir að fyrstu dagar nýs meirihluta hafi verið krefjandi og ráðist hafi verið í erfiðar aðgerðir og breytingar.„Það er enginn sem fær neina einustu gleði eða gerir það af einhverri hugmyndafræðilegri ánægju að segja upp fólki. Það er alls ekki þannig – en þetta voru gríðarlega nauðsynlegar breytingar á stjórnskipulagi borgarinnar.“Hann segir það alltaf umdeilt þegar ráðist er í breytingar sem þessar. Hann telur þó að íbúar í borginni séu ánægðir með störf meirihlutansEinar var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. SEGIR ÞJÓNUSTU VIÐ BÖRN EKKI SKERTA Formaður Sameykis gagnrýndi á dögunum að forstöðumenn félagsmiðstöðva væru færðir til í starfi og fjær börnunum.Einar telur að breytingarnar hafi ekki í för með