Gulur september er árvekniátak um geðheilbrigði, geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Í september beinum við sjónum okkar að mikilvægi þess að hlúa að okkur sjálfum og hvert öðru, sýna samkennd og muna að hrósa hvert öðru. Guli liturinn táknar meðal annars kærleik, lífskraft og von og minnir okkur á að staldra við, taka eftir andartökunum og vera til staðar fyrir hvert annað.