Í mörg ár hef ég barist fyrir bættum kjörum og aðbúnaði eldra fólks. Sem varaþingmaður í stjórnarandstöðu skrifaði ég ótal greinar og flutti ræður á fjölda funda til að vekja athygli á þeirri óásættanlegu stöðu sem ríkti í málefnum eldri borgara. Sérstaklega þeim skorti sem var á hjúkrunarrýmum. Það var á brattann að sækja og stundum var eins og talað fyrir daufum eyrum stjórnvalda.