Samkeppniseftirlitið telur Símann hafa stundað undirboð

Samkeppniseftirlitið telur að Síminn hafi stundað skaðlega undirverðlagningu þegar fyrirtækið var með tilboð á Heimilispakkanum á árunum 2019–2021. Þetta er niðurstaða frummats stofnunarinnar. Síminn fær nú færi á að andmæla þeirri niðurstöðu áður en Samkeppniseftirlitið kemst að endanlegri niðurstöðu.Ásar, móðurfélag Símans, greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær. Frummatið er hluti af rannsókn Samkeppniseftirlitsins á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu í gegnum Heimilispakkann. Þar er boðið upp á síma- og netþjónustu auk annars.Ásar taka fram í tilkynningu sinni til Kauphallar að endanleg niðurstaða sé ekki fengin. Fyrirtækið ætlar að nýta andmælarétt sinn og taka til fullra varna.
Samkeppniseftirlitið telur Símann hafa stundað undirboð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd