Donald Trump Bandaríkjaforseti lofar því að greiða öllum fullorðnum bandarískum ríkisborgurum 5.000 dollara ef repúblikanar ná að halda meirihluta á bandaríska þinginu eftir þingkosningarnar í nóvember.Bandaríkjaforseti lét þessi orð falla á þingi Repúblikanaflokksins í Dallas í gær. Forsetinn sagði að ef Repúblikanaflokkurinn sigri í þingkosningunum þá vinni kjósendur með þeim og fái sem nemur 600 þúsund krónum.Hann sagði að greiðslan yrði kölluð Trump-arðgreiðslan. Eina kvöðin á arðgreiðslunni er að peningunum þurfi að eyða í Bandaríkjunum. Hann vildi ekki að fólk færi til Kanada, Kína eða Þýskalands til að eyða peningunum.Forsetinn tilgreindi þó ekki hvernig þetta kosningaloforð hans yrði fjármagnað en sagði að Bandaríkin afli svo mikils fjár. Áætlaður kostnaður gæti farið yfir eina mil