Þær skipulagsbreytingar með fjöldauppsögnum, sem nýr meirihluti borgarstjórnar keyrði í gegn á aukafundi borgarráðs fyrir hálfum mánuði eru alvarleg atlaga að grunnþjónustu við börn, ungmenni og viðkvæma skjólstæðinga skóla, frístundastarfs og velferðarþjónustunnar í borginni. Á sama tíma er grafið undan merku starfi við uppbyggingu nærþjónustu borgarinnar undanfarna áratugi og hugmyndafræði miðstýringar innleidd á kostnað dreifstýringar og valdeflingar íbúa í sínu nærumhverfi.