Milt veður næstu daga

Útlit er fyrir frekar milt veður næstu daga. Víða verður tiltölulega hægur vindur en sums staðar kaldi, allt að tíu metrar á sekúndu. Hlýjast verður fyrir norðan og austan, allt að 16 stig.Víða rignir en íbúar norðaustanlands ættu að sleppa við vætuna.Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan 3-10 og fremur vætusamt, einkum um landið sunnan- og vestanvert. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast fyrir norðan og austan. Suðvestan 5-13 og skúrir í nótt og á morgun, en hvassari á stöku stað. Úrkomuminna á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 12 stig. Snýst smám saman í norðan og norðvestan 8-15 með rigningu fyrir norðan seinnipartinn, fyrst á Vestfjörðum. Kólnar.
Milt veður næstu daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd