Donald Trump Bandaríkjaforseti telur að stríðinu við Íran ljúki um leið og þingkosningar í Bandaríkjunum verða afstaðnar í nóvember. Hann bætti við að olíuverð muni ekki lækka fyrr en þá.Þetta sagði hann við fréttamenn á Andrews-herstöðinni áður en hann fór á þing Repúblikanaflokksins í Dallas í gær.Trump sagði að Íranar gætu ekki haldið út stríðið mikið lengur og þeir ætluðu að reyna að hafa áhrif á þingkosningarnar með þeim hætti að veikgeðja fólk komist til valda og láti Írana afskiptalausa og leyfi þeim að eignast kjarnorkuvopn.Hann sagði að þrátt fyrir að Bandaríkin væru ekki að leita samninga við Írana þá sagði hann að það gæti komið til samningaviðræðna.Helstu ráðgjafar Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu eru sagðir hafa varað forsetann við að stríðið við Írana gæti dregist á langinn o