Alvarlegt ferjuslys nærri vinsælum ferðamannastað

Búið er að bjarga 42 og leit stendur yfir að þeim sem enn er saknað.AP/Philippine Coast Guard / UncreditedAð minnsta kosti fimm eru látnir og 87 er saknað eftir að eldur braust út um borð í ferju nærri vinsælum ferðamannastað í Palawan á Filippseyjum í gærkvöld. Ferjan var í um 2,2 km fjarlægð frá landi þegar eldurinn braust út.Rúmlega 130 farþegar voru um borð auk áhafnar. Búið er að bjarga 42 og leit stendur yfir að þeim sem enn er saknað.Óljóst er hver eldsupptök voru en á myndskeiði sem deilt var af Landhelgisgæslunni á samfélagsmiðlum sést að ferjan var alelda.
Alvarlegt ferjuslys nærri vinsælum ferðamannastað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd