Taka þurfi betur utan um börn með erlendan bakgrunn

Mikilvægt er að taka sérstaklega utan um börn með erlendan bakgrunn, bæði félagslega og í námi, segir Fríða Bjarney Jónsdóttir er samhæfingastjóri MEMM-verkefnisins hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.Aðeins 28 prósent nemenda með erlendan bakgrunn búa yfir grunnfærni í lesskilningi. Hlutfallið er hærra meðal þeirra sem fæddust hér á landi eða 34 prósent - en aðeins 16 prósent nemenda, sem fæddust erlendis, búa yfir grunnfærni í lesskilningi.Til samanburðar búa 68 prósent allra nemenda, sem ekki hafa erlendan bakgrunn, yfir grunnfærni í lesskilningi. Einnig er talsverður munur á vísindum og stærðfræðilæsi.Helga Birgisdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart. Þær séu sambærilegar útkomu úr fyrri fyrirlögnum PISA. Helga segir þær heilt y
Taka þurfi betur utan um börn með erlendan bakgrunn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd