Tíu dögum eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst skrifaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Helen McEntee, utanríkis- og viðskiptaráðherra Írlands, sem fer nú með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins. Þar sagði hún að ríkisstjórnin virti niðurstöðuna og myndi því ekki beita sér fyrir því að aðildarviðræður yrðu hafnar að nýju. Jafnframt tók hún fram að staða aðildarferlis Íslands héldist óbreytt.